Tilkynning um dagskrá

Þriðjudaginn 03. mars 1998, kl. 13:33:56 (4246)

1998-03-03 13:33:56# 122. lþ. 76.91 fundur 237#B tilkynning um dagskrá#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 76. fundur, 122. lþ.

[13:33]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti vill tilkynna að áður en gengið verður til dagskrár fer fram utandagskrárumræða um skólakerfið í ljósi TIMSS-skýrslna. Málshefjandi er hv. þm. Svanfríður Jónasdóttir og hæstv. menntmrh. verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa, þ.e. hálftíma umræða.