Frsm. minni hluta umhvn. (Hjörleifur Guttormsson):
Virðulegur forseti. Nýlokið er 2. umr. og atkvæðagreiðslu um það frv. sem við ræðum hér, frv. til laga um hollustuhætti og mengunarvarnir eins og frv. nú heitir að lokinni 2. umr. Ég vildi koma að nokkrum atriðum við 3. umr. málsins. En fyrst vildi ég, virðulegur forseti, inna eftir því hvar hæstv. umhvrh. er staddur, hvort hæstv. ráðherra verður ekki viðstaddur umræðuna. Það tel ég raunar nauðsynlegt.
(Forseti (RA): Samkvæmt skráningu mun hæstv. umhvrh. ekki vera í húsinu en forseti mun gera honum viðvart um að málið sé komið á dagskrá.)
Virðulegur forseti. Ég óska eftir því að ef einhver bið verður á því að hæstv. ráðherra komi þá frestum við umræðunni.
(Forseti (RA): Það er ljóst að einhver bið verður á því að hæstv. ráðherra komi. Hann er bundinn og getur ekki komið og hefur út af fyrir sig lögmæt forföll í augnablikinu. Við verðum þar af leiðandi að fresta umræðunni um sinn og ég vænti þess að hún geti farið fram innan tíðar.)