Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Herra forseti. Við undirbúning að svari mínu áðan komumst við að raun um það í félmrn. að þessar upplýsingar liggja ekki á lausu og það er ekki svo auðvelt að afla haldbærra upplýsinga. Ég get þó nefnt nokkur dæmi. Sjúkrasjóður verkalýðsfélagsins Einingar er tiltölulega öflugur. Þótt um hann gildi ítarleg reglugerð er ekki kveðið á um greiðslur ferðakostnaðar hjá Einingu. Samkvæmt upplýsingum Einingar fjallar stjórn sjóðsins sérstaklega um sérhverja umsókn um greiðslu ferðakostnaðar. Í reglunum eru ákvæði um greiðslu dagpeninga. Það má nefna að heimilt er að greiða dagpeninga í allt að 120 virka daga á sex mánaða tímabili. Vari veikindi lengur en sex mánuði greiðast bætur í allt að 100 virka daga til viðbótar.
Í bréfinu sem ég minntist á frá ASÍ kemur fram að sjúkrasjóðirnir hafi fylgt sérhverju stéttarfélagi þegar þeir voru stofnaðir og að svo sé enn í öllum aðalatriðum og bent er á að aðildarfélög Rafiðnaðarsambandsins hafi sameiginlegan sjúkrasjóð með félagsmenn um land allt. Ég er alveg sammála hv. fyrirspyrjanda um að þarna er um misræmi að ræða og það er óeðlilegt að menn sitji ekki við sama borð hvar sem er á landinu. Ég tel að ferðakostnaður sé hlutverk sem Tryggingastofnun á að sinna fremur en sjúkrasjóðirnir.