Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að taka undir þau orð sem féllu hér áðan hjá hv. 1. þm. Vestf. Á sínum tíma veitti ég það svar við fyrirspurn Matthíasar Bjarnasonar sem hann vitnar til. Þá var ekki talið óeðlilegt í viðskrn. eða af minni hálfu að veita þau svör. Þó að hæstv. viðskrh. hefði ekki getað eða viljað veita nákvæm svör við öllum þeim spurningum sem hv. 1. þm. Vestf. bar fram, þá hefði hann þó mætavel getað veitt sambærilegar upplýsingar þeim sem ég veitti á sinni tíð við fyrirspurnum hv. þm. Matthíasar Bjarnasonar um sama efni. Mér finnst með ólíkindum að hæstv. viðskrh. skuli ekki treysta sér til þess að veita a.m.k. jafnítarlegar upplýsingar og veittar voru þá.