Svar við fyrirspurn

Fimmtudaginn 05. mars 1998, kl. 10:46:52 (4346)

1998-03-05 10:46:52# 122. lþ. 80.89 fundur 242#B svar við fyrirspurn# (aths. um störf þingsins), viðskrh.
[prenta uppsett í dálka] 80. fundur, 122. lþ.

[10:46]

Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson):

Herra forseti. Enn þarf ég að minna hv. þm. Sighvat Björgvinsson á að lesa betur. Ef hv. þm. læsi Alþingistíðindin og þá ræðu sem hann er að vitna í þá kemur það alveg skýrt fram hver mín túlkun var á þessu atriði á þeim tíma. Alþingi mun hafa allar þessar upplýsingar sem beðið er um auk þess sem hv. þm. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir bar fram fyrirspurn um þetta atriði í desember og fékk svar í sama mánuði. Hún sætti sig fullkomlega við það svar sem hv. þm. er núna að gagnrýna að verið sé að halda leynd yfir.