Einar Oddur Kristjánsson:
Herra forseti. Öllum er um það kunnugt að það kann að orka tvímælis hvenær sem er hvað þingnefnd gerir og gerir ekki, hvern hún yfirheyrir og hvern hún yfirheyrir ekki, eftir hverju hún spyr og eftir hverju hún spyr ekki. Hins vegar liggur það fyrir að efh.- og viðskn. var alveg sammála um að biðja Samkeppnisstofnun að gefa sér skýrslur, koma og ræða við nefndina, upplýsa hvernig málin stæðu og hverjar væru ástæður hennar.
Eftir fundinn með Samkeppnisstofnun voru allir nefndarmenn líka sammála um að þetta hefði verið hinn besti fundur, þetta hefði verið mjög gagnlegt, öll þessi umræða hefði verið mjög af hinu góða og að Samkeppnisstofnun hefði staðið sig mjög vel, svarað mjög vel og greiðlega öllum þeim spurningum sem til hennar var beint.
Hins vegar er ástæða til þess, herra forseti, að benda á og vekja athygli á því hvers konar frumhlaup hér er á ferðinni því það er ekkert leyndarmál að Samkeppnisstofnun var ekki kölluð fyrir að tillögu formanns nefndarinnar. Það var að tillögu hv. þm. Ágústs Einarssonar, varaformanns nefndarinnar, að Samkeppnisstofnun var beðin að mæta á fundinn.