Dómstólar

Fimmtudaginn 05. mars 1998, kl. 15:14:16 (4375)

1998-03-05 15:14:16# 122. lþ. 80.10 fundur 176. mál: #A dómstólar# frv., SvG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 80. fundur, 122. lþ.

[15:14]

Svavar Gestsson (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. fyrir svörin og vil þá láta þess getið að í næstu viku munum við leggja fram frv. um sérstök réttarfarsúrræði með frv. um sérlög um þetta efni þannig að þingið geti kynnt sér það og tekið afstöðu til þess. Ég vænti þess að það fái ekki síðri meðferð en stjórnarfrumvörp á þeim dögum sem eftir eru af þinginu.