Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og fagna þeim um leið. Eins og hæstv. ráðherra lýsir þessu er þetta í samræmi við það sem ég sagði í minni ræðu áðan um það sem ég tel eðlilegt varðandi opnunartíma. Ég skil hæstv. ráðherra svo varðandi lækkun á áfengiskaupaaldrinum úr 20 árum í 18 ár að hann telji eðlilegt að það mál verði skoðað. Ég verð að túlka það svo að það lýsi ekki andstöðu hæstv. ráðherra við þá breytingu.