Húsnæðismál

Mánudaginn 09. mars 1998, kl. 16:51:19 (4478)

1998-03-09 16:51:19# 122. lþ. 82.16 fundur 507. mál: #A húsnæðismál# frv., JóhS (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 122. lþ.

[16:51]

Jóhanna Sigurðardóttir (um fundarstjórn):

Herra forseti. Mér finnst nú mjög gott að hæstv. forsrh. blandi sér í þessa umræðu en svör hans hafa langt frá því sannfært mig um það sem við höfum deilt hér um. Því er mjög mikilvægt að sá sem ber ábyrgð á þessu áliti sem við höfum verið að deila um, þ.e. áliti fjárlagaskrifstofunnar, sé viðstaddur þessa umræðu þannig að ég held mig við mína ósk, herra forseti, um að hæstv. fjmrh. verði viðstaddur framhald þessarar umræðu.