Húsnæðismál

Mánudaginn 09. mars 1998, kl. 18:50:43 (4502)

1998-03-09 18:50:43# 122. lþ. 82.16 fundur 507. mál: #A húsnæðismál# frv., Forseti StB
[prenta uppsett í dálka] 82. fundur, 122. lþ.

[18:50]

Forseti (Sturla Böðvarsson):

Forseti vill upplýsa það að hv. 1. þm. Reykn. er nú í sínu kjördæmi eins og forseti nefndi, af sérstökum ástæðum, ekki sem þingmaður heldur sem forseti Alþingis. Hann er væntanlegur í þinghúsið á ný um klukkan hálfátta, þannig að ekki verður hægt að koma á fundi með forseta þingsins fyrr en á þeim tíma. Forseti vill því biðja hv. þingmenn að taka tillit til þessara aðstæðna sem uppi eru og að nýttur verði sá tími sem gert var ráð fyrir að yrði fyrir hlé.