Byggingar- og húsnæðissamvinnufélög

Þriðjudaginn 10. mars 1998, kl. 17:27:31 (4541)

1998-03-10 17:27:31# 122. lþ. 83.2 fundur 508. mál: #A byggingar- og húsnæðissamvinnufélög# frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 83. fundur, 122. lþ.

[17:27]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Ég tel að þessi ákvæði séu nægjanlega sterk í frv. En ef hv. félmn. telur að þau séu of veik þá hef ég alls ekki á móti því að hún styrki þessi ákvæði. Ég hef margtekið það fram að það er ekki hugmynd mín að slá búsetufyrirkomulagið af og ef hv. félmn. telur að það sé ekki nægilega vel tryggt í frv. þá er velkomið af minni hálfu að styrkja það.