Atvinnusjóður kvenna

Þriðjudaginn 10. mars 1998, kl. 18:33:53 (4555)

1998-03-10 18:33:53# 122. lþ. 83.9 fundur 72. mál: #A atvinnusjóður kvenna# þál., JóhS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 83. fundur, 122. lþ.

[18:33]

Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):

Herra forseti. Í þessu andsvari hv. þm. var hv. þm. ekki að mótmæla neinu sem ég sagði heldur fremur að styrkja og taka undir það sem fram kom í ræðu minni og ég þakka hv. þm. fyrir það og ég þakka líka hv. þm. fyrir það athyglisverða innlegg sem hún var með sem styrkir mig enn í þeirri trú að stjórnarandstaðan verður að fara að taka málið í sínar hendur og úr höndum ríkisstjórnarinnar sem ekkert gerir til að styrkja stöðu veikustu hópanna á vinnumarkaðnum.