Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Vegna orða hv. fyrirspyrjanda er nauðsynlegt að taka fram að ég var ekki að fullyrða neitt um þessa umræddu skipasmíðastöð í Kína sem reyndar var ekki tilboðsgjafinn. Það var íslenskt fyrirtæki sem gerði tilboð en ekki þessi skipasmíðastöð þannig að fjárhagsleg skoðun á tilboðinu hlaut að lúta að tilboðsgjafanum. Ríkiskaup sögðu einfaldlega að tilboðsgjafinn hefði ekki sýnt fram á þau atriði sem hér var um að ræða, bæði að því er varðaði fjárhagsgrundvöllinn á bak við tilboðið og eins varðandi tæknileg atriði. Það er tilboðsgjafans að gefa þær upplýsingar og í áliti Ríkiskaupa kemur fram að þrátt fyrir marga fundi og ítrekaðar fyrirspurnir hafi svör við þessu ekki borist. Ég hef ekki ástæðu til þess að rengja það að starfsmenn Ríkiskaupa segi hér satt og rétt frá. Ég hef ekki neitt í höndunum sem gefur mér tilefni til þess að ætla að þeir hafi sagt mér ósatt í þessu efni.
Varðandi það sem hv. 6. þm. Norðurl. e. vék að um sérstaka samninga við Slippstöðina á Akureyri, þá vildi ég gjarnan að hv. þm. upplýsti hvort þeir samningar voru gerðir áður en tilboðsfrestur rann út eða á eftir því það hlýtur að skipta mjög miklu máli um það hvort slíkur samningur hafi eitthvert efnislegt gildi í mati á tilboðunum.