Ábyrgðarmenn

Fimmtudaginn 12. mars 1998, kl. 14:52:14 (4660)

1998-03-12 14:52:14# 122. lþ. 86.11 fundur 310. mál: #A ábyrgðarmenn# frv., Flm. LB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 122. lþ.

[14:52]

Flm. (Lúðvík Bergvinsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það hafi aldrei verið dregið í efa að hér væri einn fundarstjóri. Ég vil aðeins segja við hv. þm. Pétur Blöndal að hafi ég á einhvern hátt misskilið ummæli hans hér áðan og talið að hér væri of langt gengið, þá vil ég þakka það að hann skuli taka undir þessi viðhorf og jafnvel á köflum vilja ganga aðeins lengra.