Örnefnastofnun Íslands

Mánudaginn 16. mars 1998, kl. 15:08:53 (4682)

1998-03-16 15:08:53# 122. lþ. 88.2 fundur 166. mál: #A Örnefnastofnun Íslands# frv. 14/1998, SvG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 88. fundur, 122. lþ.

[15:08]

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég er í raun andvígur því að setja upp sérstaka ríkisstofnun til að annast skráningu örnefna eins og hér er verið að gera tillögu um. Ég tel hins vegar að miðað við allar aðstæður eigi ég ekki annan kost í þessu máli en að sitja hjá þó að ég telji málið í fyrsta lagi faglega vitlaust, í öðru lagi fjárhagslega vitlaust og í þriðja lagi pólitískt vitlaust.