Vopnalög

Mánudaginn 16. mars 1998, kl. 15:20:40 (4684)

1998-03-16 15:20:40# 122. lþ. 88.14 fundur 175. mál: #A vopnalög# frv., Frsm. SP
[prenta uppsett í dálka] 88. fundur, 122. lþ.

[15:20]

Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frhnál. og brtt. allshn. á þskj. 961 og 962.

Nefndin fjallaði um málið milli 2. og 3. umræðu og fékk til viðræðna við sig þá Benedikt Bogason frá dómsmálaráðuneytinu, Jón Bjartmarz frá embætti ríkislögreglustjóra og Einar K. Haraldsson frá SKOTVÍS.

Nefndin leggur til að frumvarpið, eins og það liggur fyrir eftir 2. umræðu, verði samþykkt með minni háttar breytingum. Í fyrsta lagi er þar um að ræða breytingu á 2. mgr. 3. gr. þar sem lagt er til að bætt verði inn í frumvarpið reglugerðarheimild dómsmálaráðherra. Í ákvæðinu er kveðið á um tæki og efni sem lögin ná ekki til, en reynslan sýnir að nauðsynlegt getur verið að ráðherra hafi heimild til setningar reglna um þessi atriði. Þá eru lagðar til breytingar á 17. gr. frumvarpsins sem miða að því að skýra orðalag greinarinnar. Loks er lögð til breyting á 35. gr. Lýtur breytingin að því að lögreglustjóri hafi ekki heimild til þess að selja skotvopn við leyfissviptingu, þegar ekki eru fyrir hendi skilyrði eignaupptöku, fyrr en að liðnum sex mánuðum frá leyfissviptingu, en almenna reglan um heimild lögreglustjóra til slíkrar sölu er einn mánuður.

Allshn. þykir rétt að skýra frekar nokkur ákvæði frumvarpsins þar sem nokkurs misskilnings virðist hafa gætt um þau og er það gert í frhnál. nefndarinnar. Í fyrsta lagi er áréttað að það er skilningur nefndarinnar að í skilgreiningu á sprengiefni í 4. mgr. 1. gr. felist einnig hvers konar gasefni sem notuð eru sem sprengiefni.

Í öðru lagi er áréttað að með 9. gr. er lagt til að lögfest verði að þeir sem versla með, flytja inn eða framleiða skotvopn, skotfæri, sprengiefni og skotelda skuli halda færslubækur yfir keypt og seld vopn. Með ákvæðinu er ætlunin að koma reglu á þessi mál þannig að auðveldara verði að rekja uppruna skotvopns og skotfæra. Þannig ættu alltaf að liggja fyrir upplýsingar um magn seldra vopna, skotfæra, skotelda og sprengiefna annars vegar og hins vegar magn þessara vörutegunda á lager hverrar verslunar.

Varðandi ákvæði 2. mgr. 14. gr. um undanþágu frá ákvæðum laganna um að skotvopn skuli númerað eintaksnúmeri er rétt að taka fram að um er að ræða undanþáguheimild fyrir bændur og dýralækna vegna fjárbyssna sem lýtur aðeins að eintaksnúmeri framleiðanda en ekki að skráningu vopnanna. Þau skulu skráð eins og önnur skotvopn í skotvopnaskrá.

Þá er rétt að taka fram varðandi breytingu sem nefndin lagði til við 21. gr. fyrir 2. umræðu, og lýtur að umbúðum sem skotvopn skulu vera í við burð þeirra og flutning milli staða, að ákvæðinu er ætlað að koma í veg fyrir að menn séu með vopn á almannafæri nema í viðeigandi umbúðum.

Einnig vill nefndin benda á að ákvæði 22. gr., um að ekki megi afhenda öðrum skotfæri en þeim sem skráður er fyrir skotvopni sem þau eru ætluð fyrir, er ætlað að tryggja öryggi í meðferð skotvopna og er ákvæðið í samræmi við framkvæmd víða á undanförnum árum.

Eftir 2. umr. málsins barst nefndinni einnig ábending um að undanþiggja þyrfti sverð sem ætluð eru til æfinga og keppni í skylmingum banni d-liðar 2. mgr. 30. gr. frv., en þar er kveðið á um að bannað sé að flytja til landsins, framleiða, eignast eða hafa í vörslum sínum sverð sem eru sambland högg- og bitvopna. Nefndin telur ekki ástæðu til þess að flytja brtt. af þessu tilefni þar sem í 3. mgr. 30. gr. er að finna undanþáguheimild frá banni 2. mgr. með leyfi ríkislögreglustjóra ef sérstakar ástæður mæla með því. Á undanþáguheimild þessi við skylmingaverð, sverð sem eru notuð við leiksýningar og ýmsar slíkar uppákomur.

Nefndin mælir með samþykkt frv. og undir nál. skrifa Sólveig Pétursdóttir, Valgerður Sverrisdóttir, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Kristjánsson, Árni R. Árnason, Kristján Pálsson, Bryndís Hlöðversdóttir, Hjálmar Jónsson og Guðný Guðbjörnsdóttir.