Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Ég þakka góðar undirtektir hv. þm. við meginefni frv. Ég er viss um að verði það að lögum, þá styrkti það þá starfsemi sem hér fer fram og gæfi markaðs- og vöruþróunarverkefnum byr í seglin. Það er mjög mikilvægt að unnt verði að stíga ný skref til frekari vinnslu síldarafurða. Á því sviði hefur náðst mjög markverður árangur og ég er sannfærður um að þróunin er í rétta átt, áfram eins og á undanförnum árum. Frekari rannsóknir og stofnun sérstaks sjóðs um vöruþróun og markaðsstarfsemi á að auðvelda okkur að varða veginn fram á við í þeim efnum.
Varðandi tvær spurningar sem hér komu fram frá hv. 9. þm. Reykv. er það að segja að sú upphæð sem varið er til sérstaks rannsóknasjóðs tekur mið af þeim hlut sem ella hefði runnið til þeirra fyrirtækja sem orðið hafa gjaldþrota eða hefur verið slitið á tímabilinu.
Varðandi stjórn veiða á norsk-íslenska síldarstofninum, þó það álitaefni heyri nú ekki beint undir umræðuefni dagsins, þá er það mál til skoðunar núna. Við höfum verið þeirrar skoðunar að eðlilegt væri að hafa bráðabirgðaskipan á þeim málum þangað til við sæjum endanlega göngumynstur norsk-íslensku síldarinnar. Með nokkrum rétti hefur verið bent á að eðlilegt væri að endanlegar ákvarðanir yrðu teknar þegar síldin hefði tekið upp sitt gamla göngumynstur og menn sæju þá betur hvernig hægt væri að standa að veiðunum og hvernig eðlilegast væri að skipuleggja þær til lengri tíma. Út frá því sjónarmiði hafa verið settar fram tillögur um bráðabirgðaskipan þessara mála og ég vona að unnt verði að kynna þær innan skamms.