Tekjuskattur og eignarskattur

Þriðjudaginn 17. mars 1998, kl. 13:44:56 (4698)

1998-03-17 13:44:56# 122. lþ. 89.2 fundur 524. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (vaxtabætur) frv., forsrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 89. fundur, 122. lþ.

[13:44]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):

Herra forseti. Það hefur komið fram hjá hæstv. félmrh. að heilmikið tillit hafi verið tekið til sjónarmiða verkalýðshreyfingarinnar varðandi undirbúning og meðferð málsins. Það hefur jafnframt komið fram hjá hæstv. félmrh. að hann vill gjarnan hafa náið samráð við fulltrúa verkalýðshreyfingarinnar áfram um málið. Enginn er að slá á þá útréttu hönd. Hins vegar er mat hæstv. félmrh. og mat mitt að þetta mál megi mjög léttilega klára í góðum friði og við góða athugun á þeim tíma sem enn er til stefnu í þinginu.