Tekjuskattur og eignarskattur

Þriðjudaginn 17. mars 1998, kl. 16:47:45 (4739)

1998-03-17 16:47:45# 122. lþ. 89.2 fundur 524. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (vaxtabætur) frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 89. fundur, 122. lþ.

[16:47]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Mér hefur ekki verið sýnt fram á að þakið sé of lágt. Það er bara einfaldlega svo. (Gripið fram í.) Það getur vel verið að þau dæmi komi fram að það réttlæti að hækka þakið. Hitt er annað mál að það er ekki góður hlutur að ginna tekjulágt, efnalaust fólk til að kaupa of dýrt.