Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég tek undir orð hv. þm. Svavars Gestssonar. Hæstv. fjmrh. hefur talað um það í nokkur ár að fella niður þessi framtöl og það er tími til kominn að því verði hrint í framkvæmd.
En ég kem upp út af orðum forsrh. um skattsvikin. Ég get alveg tekið undir það að þegar talað er um skattsvik, þá sér fólk fyrir sér einhverja svartklædda menn með skjalatöskur sem eru að svindla á kerfinu. Það er ekki þannig en það er vissulega rétt að sumir ráða miklu um það hversu mikla skatta þeir greiða. Það er vegna þess að í skattkerfi okkar eru ýmsar smugur, þ.e. lagaákvæði hafa verið sett í skattalög sem hafa verið hugsuð fyrir einhverjar sérstakar aðstæður, tilfelli eða fyrirtæki og aðrir geta nýtt sér þær. Það er þekkt í þjóðfélagi okkar að í skattamálum eru hæfir menn keyptir til fyrirtækja til þess einmitt að nýta sér þau lög sem menn lifa við einmitt til að borga ekki meiri skatta en þeir þurfa.
Ég ætla að nefna annað. Það eru einkahlutafélögin og hvað hefur opnast með þeim. Þau gefa einyrkjum tækifæri til að setja eignir í hendur einkahlutafélaga, jafnvel húsið, bílinn o.s.frv., borga sér lág laun en líka greitt sér út yfir höfuðstól. Við þær aðstæður á viðkomandi að borga hlunnindaskatt en hann er lágur í samanburði og jafnvel er hægt að setja fjármagn í önnur fyrirtæki sem gefa arð og þá er bara greiddur 10% skattur.
Ég ætla að upplýsa það hér að ég skoðaði slík mál í fyrra þegar einstaklingur sagði frá því í ræðu og riti að hann hefði gengið á milli skattyfirvalda og stjórnmálamanna af því að í áratug hafði hann skoðað götuna sína og sá sem virtist eiga mestar eignir og barst mest á borgaði ekki neitt og af tíu einstaklingum sem hann hafði borið lengi saman voru sumir sem fengu meira endurgreitt frá ríkinu en þeir borguðu í skatta.