Tilkynning um dagskrá

Miðvikudaginn 18. mars 1998, kl. 13:31:52 (4826)

1998-03-18 13:31:52# 122. lþ. 90.91 fundur 262#B tilkynning um dagskrá#, Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 90. fundur, 122. lþ.

[13:31]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti vill geta þess að áformað er að kl. 15.30 fari fram utandagskrárumræða um stjórnsýsluákvarðanir um lagningu Borgarfjarðarbrautar. Málshefjandi er Gísli Einarsson og umhvrh. Guðmundur Bjarnason verður til andsvara. Umræðan fer fram skv. 1. mgr. 50. gr. þingskapa, þ.e. hálftíma umræða.