Vinna í nefndum

Fimmtudaginn 19. mars 1998, kl. 10:40:38 (4886)

1998-03-19 10:40:38# 122. lþ. 91.91 fundur 265#B vinna í nefndum# (aths. um störf þingsins), Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 91. fundur, 122. lþ.

[10:40]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Forseti hefur heyrt athugasemdir hv. þm. og kemur honum ekki á óvart. Við þingflokksformenn höfum rætt það í hópi okkar og forseti áður og forseti mun ræða þessi mál frekar við þingflokksformenn.

Forseti vill aðeins nota tækifærið til þess að þakka þingflokksformönnum fyrir mjög góðan samstarfsvilja og lætur í ljós von um að þetta góða samstarf megi halda áfram en mun sem sagt ræða málin frekar við þingflokksformenn.