Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Eins og hv. þm. vék að í upphafi var erindi hópsins að freista þess að leita eftir pólitískri samstöðu um framgang málsins og að viðhafa nauðsynlegt samráð um þau skref sem talið yrði ráðlegt að stíga í þessum efnum. Ákveðið undirbúnings- og könnunarstarf hefur farið fram af hálfu embættismanna og þess vegna er að því komið að hópurinn komi saman og ræði þessi viðfangsefni í því ljósi og hvernig réttast er að halda á málum í framhaldinu.