Almenn hegningarlög

Mánudaginn 23. mars 1998, kl. 16:27:16 (5027)

1998-03-23 16:27:16# 122. lþ. 92.12 fundur 444. mál: #A almenn hegningarlög# (tölvubrot) frv., Frsm. SP
[prenta uppsett í dálka] 92. fundur, 122. lþ.

[16:27]

Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti allsherjarnefndar á þingskjali 996 um frumvarp til laga um breyting á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940.

Nefndin hefur fjallað um málið og fékk hún á sinn fund til viðræðna um málið Benedikt Bogason frá dómsmálaráðuneytinu, Davíð Þór Björgvinsson dósent og Friðrik Sigurðsson frá Samtökum íslenskra hugbúnaðarfyrirtæki. Þá bárust nefndinni umsagnir um málið.

Í frumvarpinu eru lagðar til nokkrar breytingar á ákvæðum almennra hegningarlaga sem miða að því að mæla refsiverða nánar tiltekna háttsemi sem tengist tölvum og notkun þeirra. Meðal helstu nýmæla frumvarpsins eru ákvæði um skemmdarverk á tölvubúnaði, bæði á tölvuvélbúnaði og gagnaberum og á forritum og gögnum. Þá eru í frumvarpinu lýst refsiverð brot sem framin eru með því að nota tölvu og er þar fyrst og fremst um auðgunarbrot að ræða. Einnig eru í frumvarpinu ákvæði um óheimila notkun á tölvum og innbrot í tölvukerfi og loks er í frumvarpinu tekið á eftirgerð tölvubúnaðar, en núgildandi lagaákvæði veita takmarkaða refsivernd gagnvart slíkum brotum.

Tölvubrot ýmiss konar eru nú sífellt meira til umræðu og fagnar nefndin því að lagt hafi verið fram frumvarp þar sem tekið er á slíkum brotum. Jafnframt telur nefndin rétt að benda á að þróun á sviði tölvutækni er ör og því brýnt að fylgjast grannt með umræðu um refsiréttarleg álitaefni á þessu sviði. Hjá viðmælendum nefndarinnar komu fram ábendingar um að sérstaklega þyrfti að huga að brotum þar sem fjarskiptabúnaður er notaður, en mikið tjón getur hlotist af slíkum brotum. Telur nefndin brýnt að hafin verði nú þegar vinna við það að móta ákvæði þar sem tekið verði á þessum málum.

Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins.

Guðný Guðbjörnsdóttir og Bryndís Hlöðversdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en aðrir nefndarmenn skrifa undir álitið.