Samábyrgð Íslands á fiskiskipum

Mánudaginn 23. mars 1998, kl. 18:46:30 (5047)

1998-03-23 18:46:30# 122. lþ. 92.20 fundur 557. mál: #A Samábyrgð Íslands á fiskiskipum# frv., SvG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 92. fundur, 122. lþ.

[18:46]

Svavar Gestsson (andsvar):

Herra forseti. Það var nákvæmlega þetta sem ég átti við að mér sýnist að undirbúningur málsins sé þannig að varla sé hægt að ætlast til þess að á þeim örfáu dögum sem eftir lifa af þinginu að þetta mál verði að lögum nákvæmlega eins og það lítur út vegna þess að rökstuðning og undirbúning vantar undir málið m.a. í bátaábyrgðarfélögunum og stjórnum þeirra.