Svavar Gestsson (andsvar):
Herra forseti. Mér fannst í andsvarinu að hv. þm. hafi staðfest það sem ég var að segja áðan að hann hefur í raun og veru tvenns konar skoðanir í þessum málum eftir því hvort málið hann er að tala um en ég vísa að öðru leyti til umræðunnar um Eignarhaldsfélag Brunabótafélagsins sem fram fer hér á eftir.