Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Ég vona að hæstv. ráðherra geri sér grein fyrir því hvað hann er að segja þegar hann stillir málunum svona upp gagnvart hv. þm. Einari Oddi Kristjánssyni. Ég ætla ekki að blanda mér í þær deilur.
Ég kom til þess að ræða kaupverðið í upphafi þessarar umræðu og ég sætti mig fyllilega við þá skýringu sem hæstv. ráðherra gefur á því hvernig sú tala er fundin. Hæstv. ráðherra kemur hins vegar hingað og lýsir því yfir í sinni síðustu ræðu að ef staðið væri öðruvísi að sölu þessa fyrirtækis, ef það yrði boðið út á markaði --- hann vísar til þess að það eru fyrirtæki sem vilja kaupa það --- þá mundum við skattborgararnir fá meira í okkar hlut heldur en við fáum með þessu fyrirkomulagi. Þess vegna hlýt ég að velta því fyrir mér hvort hæstv. ráðherra líði ekki svolítið illa að hafa farið þessa leið vegna þess að ég trúi því að hann vilji sem vandaður ráðherra efla hlut skattborgaranna og sjá til þess að við fáum sem mest fyrir þessar eignir sem verið er að selja. Mér finnst reyndar að þessi yfirlýsing hæstv. ráðherra setji þetta mál í heldur undarlegt samhengi og geri það að verkum að menn þurfa að skoða það mjög vel hvort þeir ætli að fallast á þetta.
Að öðru leyti vildi ég segja það sem mér gafst ekki tóm til áðan, herra forseti, að ég hnaut um það að hæstv. ráðherra sagði að draugagangur hefði komið í málið utan þingsins og það hefði birst með þeim hætti að einhverjir aðilar hefðu haft samband við þingmenn. Ég vil þess vegna að það komi alveg skýrt fram að ekki hefur nokkur einasti þessara drauga sem hæstv. ráðherra segir að séu til utan þingsins haft samband við mig. Ég kom hérna bara vegna þess að ég hnaut um ákveðnar tölur sem var að sjá í greinargerð með frv. hæstv. ráðherra og mér sýnist að hafi verið ærið tilefni til þess að ég gerði það.