Ágúst Einarsson (andsvar):
Herra forseti. Ég var ekki að spyrja um verkkunnáttu núverandi seðlabankastjóra. Á því getur hæstv. ráðherra haft þá skoðun sem hann vill. Ég spurði einfaldlega um það hvort ráðherrann mundi beita sér fyrir því að gerð yrði sú breyting á seðlabankalögunum að skipaður yrði einn seðlabankastjóri. Ég skil ráðherra þannig að hann muni ekki leggja til þá breytingu þótt seðlabankalögin séu opnuð núna með þessum hætti og einfalt væri að gera þá breytingu ef hann vildi. Ég skil að hann kýs að gera það ekki.
Ég vildi gjarnan fá skýrari svör hjá ráðherra við seinni spurningunni minni ef sú tillaga kæmi fram sem ég á fastlega von á að verði borin fram við 2. umr. málsins að við Seðlabankann yrði einungis einn seðlabankastjóri. Skil ég þá ráðherra rétt í því að hann muni greiða atkvæði gegn slíkri tillögu?