Viðskiptaráðherra (Finnur Ingólfsson) (andsvar):
Herra forseti. Mér finnst rétt að nota tækifærið til að rifja upp það sem áður hafði farið fram varðandi umræðuna um bankastjóra og af því að ég veit að hv. þm. veit að sá seðlabankastjóri sem er núna að yfirgefa bankann er verkmaður mikill, ég vildi bara halda því til haga í þessari umræðu.
Til að svara því alveg skýrt sem spurt er um mun ég ekki styðja tillögu sem fram kæmi um það að fækka bankastjórum Seðlabankans frá því sem nú er því að hér er ekki um heildarendurskoðun á lögunum um Seðlabankann að ræða. Hér er um afmarkaða tiltekna þætti í endurskoðun laganna að ræða, tvö tæknileg atriði sem snúa að greiðslumiðlun og svo fyrst og fremst þau atriði sem snúa að breytingu á bankaeftirlitinu og fjármálaeftirlitinu.
Hins vegar kemur að því að seðlabankalögin eins og önnur lög sem hafa verið í sífelldri endurskoðun um fjármagnsmarkaði munu verða tekin til endurskoðunar en engin ástæða er til þess að vera með vangaveltur um það á þessari stundu til hvaða niðurstöðu sú endurskoðun mun leiða. Ég ætla að láta það bíða og láta koma í ljós hver sú niðurstaða verður. Hins vegar er erfitt að velta slíkum hlutum fyrir sér. Menn hefðu ekki séð það fyrir í vangaveltum fyrir kannski tveimur árum hvernig ætti að koma fyrir bankaeftirliti eða Vátryggingareftirlitinu. En niðurstaðan varð farsæl og ég tel að um hana sé góð samstaða eftir nefndarstarf í þeim efnum og ég tel eðlilegt að innan tíðar verði farið að huga að því með nefndarstarfi hvort ekki sé rétt að taka ákveðna hluti og fram fari heildarendurskoðun á lögunum um Seðlabanka Íslands.