Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):
Herra forseti. Það kemur alltaf það sama í gegn hjá þessum hv. þm. þ.e. ef framkvæmdarvaldið hefur ekki blessað málið, ef framkvæmdarvaldið og embættismennirnir hafa ekki gefið grænt ljós á málið, ef framkvæmdarvaldið og embættismennirnir hafa ekki haldið í höndina á hv. þm. og öðrum þingmönnum Sjálfstfl. sem hér hafa talað og veitt þeim leiðsögn í málinu, þá er Alþingi ekki fullbúið og ekki í stakk búið til að taka afstöðu til málsins. Hv. þm. neitar tilboði mínu um að taka málið aftur inn í nefnd og gefa umsagnaraðilum færi á að segja sína skoðun á því. Af hverju skyldi það nú vera? Er það ekki vegna þess að þetta er ekki stjórnartillaga, ekki hluti af stjfrv., eins og hv. þm. sagði?
Nei, herra forseti, þetta gengur allt út á það sama hjá þessum þingmönnum. Ef þeir hafa ekki fengið leiðsögnina ofan úr dómsmrn. og frá embættismönnunum þar þá er Alþingi ekki í stakk búið til þess að taka afstöðu til málsins. Þetta er fullkomin vanvirðing við þingið. Auðvitað á þingið að geta haft sjálfstæða hugsun í þessu máli og tekið afstöðu til tillögu eins og hér liggur fyrir án þess að embættismennirnir blessi hana.