Ágúst Einarsson (andsvar):
Herra forseti. Ég kýs að koma upp í andsvari við hv. þm. þó að þær ásakanir sem hér hafa verið bornar fram af hv. þm. Kristjáni Pálssyni varðandi þetta mál ættu frekar heima undir öðrum dagskrárlið, þ.e. um fundarstjórn forseta, en e.t.v. verður tækifæri til að ræða þau mál ítarlegar að loknum andsvörum.
Þessi umræða og gagnrýni sem hv. þm. viðhafði hér á störf minni hluta í allshn. er fyrir neðan allar hellur. Allur þingheimur veit að starfið í allshn. hefur verið þannig að þar er unnið mjög vandlega. Auðvitað hafa menn ekki alltaf verið sammála en það hefur verið farið mjög málefnalega yfir öll mál. Og fullyrðingar um að mál hafi verið tekin í gíslingu þar til hægt var að sjá hvað ríkisstjórnin vildi afgreiða á þessu þingi, er fráleitur málflutningur af hálfu þingmannsins. Vitaskuld eru umræður milli þingflokksformanna og forseta um hvernig haga beri störfum þingsins. En ummæli eins þingmanns sem kemur upp og sakar annan úr nefnd fyrir að tefja mál og starfa ekki samkvæmt þingsköpum, eru að mínu mati þess eðlis að það ber að taka þau upp á fundum þingflokksformanna og forseta.
Herra forseti. Ég kann ekki við svona vinnubrögð. Við upplifðum þetta fyrir nokkrum dögum þegar stjórnarliðar sökuðu stjórnarandstæðinga um að sinna ekki störfum sínum. Nú er maður að heyra aftur að menn séu að misbeita verksviði sínu í nefndarstörfum. Þessi umræða er ekki þinginu sæmandi og ber því að taka hana upp af til þess bærum embættismönnum hvort sem það eru forseti eða formenn þingflokka.