Kjaramál fiskimanna

Föstudaginn 27. mars 1998, kl. 17:10:38 (5208)

1998-03-27 17:10:38# 122. lþ. 96.1 fundur 603. mál: #A kjaramál fiskimanna# frv. 10/1998, 604. mál: #A stjórn fiskveiða# frv. 12/1998, 605. mál: #A Verðlagsstofa skiptaverðs# frv. 13/1998, 606. mál: #A Kvótaþing# frv. 11/1998, Frsm. 1. minni hluta SvanJ
[prenta uppsett í dálka] 96. fundur, 122. lþ.

[17:10]

Frsm. minni hluta sjútvn. (Svanfríður Jónasdóttir):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. 1. minni hluta sjútvn. um frv. til laga um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.

Herra forseti. Fyrsti minni hluti sjávarútvegsnefndar, sem ásamt mér skipar hv. þm. Lúðvík Bergvinsson, átelur harðlega að ríkisstjórnin skuli, í krafti meiri hluta síns á Alþingi, lögbinda kjör sjómanna næstu tvö árin.

Þegar sjómenn greiddu atkvæði um miðlunartillögu sáttasemjara var forsenda samþykkis þeirra að frumvarpaþrenna embættismannanefndar ríkisstjórnarinnar yrði lögfest efnislega óbreytt, enda hafði sjávarútvegsráðherra heitið þeim að það yrði gert.

Stjórnarandstaðan hefur lagt áherslu á að sjávarútvegsráðherra og ríkisstjórnin standi við loforð sín gagnvart sjómönnum. Með vísan til þeirra efnisbreytinga sem felast í breytingartillögum meiri hluta sjávarútvegsnefndar er á hinn bóginn ljóst að ríkisstjórnin ætlar að svíkja gefin loforð.

Herra forseti. Það var ríkisstjórnin sem valdi leið frumvarpanna þriggja. Sú staða sem upp er komin og afleiðingar afskipta ríkisstjórnarinnar af málefnum sjómanna er algerlega á hennar ábyrgð.

Með því að breyta frv. um stjórn fiskveiða í grundvallaratriðum er ljóst að forsendur eru orðnar aðrar en þær voru þegar greidd voru atkvæði um miðlunartillögu sáttasemjara.

Með vísan til þessa mun minni hluti sjútvn. sitja hjá við afgreiðslu þessara mála í heild sinni.