Loftferðir

Mánudaginn 30. mars 1998, kl. 19:13:15 (5285)

1998-03-30 19:13:15# 122. lþ. 98.7 fundur 201. mál: #A loftferðir# (heildarlög) frv., ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 98. fundur, 122. lþ.

[19:13]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Það er fullkominn misskilningur hjá hæstv. ráðherra að ég hafi lagt til að gildandi lög yrðu áfram í gildi að því leyti sem snýr að því hvernig skipað er í flugráðið. Það er algerlega rangt hjá hæstv. ráðherra og misskilningur. Ég taldi að eðlilegt væri að Alþingi kysi alla fullrúana og síðan að hæstv. ráðherra skipaði formann. Það taldi ég eðlilega meðferð málsins en ekki að gildandi lög yrðu áfram í gildi.