Loftferðir

Þriðjudaginn 31. mars 1998, kl. 15:14:12 (5317)

1998-03-31 15:14:12# 122. lþ. 99.9 fundur 201. mál: #A loftferðir# (heildarlög) frv., samgrh. (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 99. fundur, 122. lþ.

[15:14]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Ég vil einungis taka fram að sú skipan flugráðs sem hér er gert ráð fyrir er sú sama og er í núgildandi lögum og hef ég ekki orðið var við að menn hafi gagnrýnt það svo mjög.