Samningar um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum 1998

Þriðjudaginn 31. mars 1998, kl. 20:01:59 (5363)

1998-03-31 20:01:59# 122. lþ. 100.9 fundur 615. mál: #A samningar um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum 1998# þál., utanrrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 100. fundur, 122. lþ.

[20:01]

Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Hér er líka um mjög mikilvægt mál að ræða, till. til þál. um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum, sem hefur áður verið rætt á Alþingi.

Ég vísa til athugasemda sem fylgja þessari þáltill. og legg til að að lokinni þessari umræðu verði henni vísað til hv. utanrmn.