1998-03-31 20:03:48# 122. lþ. 100.11 fundur 617. mál: #A samningur milli Grænlands og Íslands um fiskveiðar innan grænlenskrar og íslenskrar lögsögu# þál., utanrrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 100. fundur, 122. lþ.

[20:03]

Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Till. til þál. um staðfestingu samnings milli Grænlands og Íslands um fiskveiðar gengur m.a. út á heimildir Grænlendinga til að veiða loðnu í okkar lögsögu. Á það hefur m.a. verið lögð áhersla hér á hv. Alþingi.

Þetta mál hefur áður komið hér til umfjöllunar. Ég vísa til þeirrar umræðu og athugasemda með þáltill. og legg til að henni verði vísað til hv. utanrmn.