Starfsemi kauphalla

Mánudaginn 06. apríl 1998, kl. 15:16:46 (5390)

1998-04-06 15:16:46# 122. lþ. 101.9 fundur 285. mál: #A starfsemi kauphalla# frv., Frsm. VE
[prenta uppsett í dálka] 101. fundur, 122. lþ.

[15:16]

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Hæstv. forseti. Ég kynni brtt. frá efh.- og viðskn. við þetta frv. til laga um starfsemi kauphalla og skipulegra tilboðsmarkaða sem er til umræðu. Efh.- og viðskn. fjallaði aðeins um málið milli 2. og 3. umr. og er sammála um að gera brtt. sem liggja frammi á þskj. 1150 í þremur liðum. Þetta eru annars vegar hreinar orðalagsbreytingar sem hafa komið fram við prófarkalestur að eru nauðsynlegar og hins vegar er ákvæði sem á að tryggja að það sem rætt er um í 19. gr. frv. verði ekki afturvirkt. Að öðru leyti gerir nefndin að tillögu sinni að frv. verði samþykkt.