Stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum

Þriðjudaginn 14. apríl 1998, kl. 17:46:39 (5476)

1998-04-14 17:46:39# 122. lþ. 103.6 fundur 642. mál: #A stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum# frv., sjútvrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 103. fundur, 122. lþ.

[17:46]

Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):

Herra forseti. Ég gat þess í ræðu minni áðan að ég reiknaði með að úthlutun til nýrra skipa yrði svipuð og á milli þeirra skipa sem hafa veiðireynslu. Þar hefur þó endanleg ákvörðun ekki verið tekin. En varðandi spurninguna um túlkun á c-liðnum er það svo að þegar nýtt skip hefur aflað sér veiðireynslu getur það árið eftir framselt með tilvísun til þeirrar veiðireynslu sem þá er orðin til.