Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frv. til laga um áframhaldandi gildi samninga með tilkomu evrunnar.
Þetta nefndarálit er frá efh.- og viðskn. Frv. var sent til umsagnar til hefðbundinna aðila og fjallað um það í nefndinni.
Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum að annars vegar falli 2. mgr. 4. gr. niður, sem fjallar um gildistöku en að gildistakan verði í sérstakri grein sem orðist svo: ,,Lög þessi öðlast þegar gildi.``
Hæstv. forseti. Undir þetta nefndarálit ritar gjörvöll efh.- og viðskn. utan Sólveigar Pétursdóttur sem var fjarverandi afgreiðslu málsins.