Gagnagrunnar á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 16. apríl 1998, kl. 17:24:19 (5584)

1998-04-16 17:24:19# 122. lþ. 106.12 fundur 661. mál: #A gagnagrunnar á heilbrigðissviði# frv., MF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 106. fundur, 122. lþ.

[17:24]

Margrét Frímannsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Vissulega er þessi samningur m.a. til þess að vísindin hafi ákveðið svigrúm en þó að fengnu samþykki þess einstaklings sem í hlut á þar sem upplýsingarnar eru hans persónuleg eign. Samningurinn er líka gerður, hv. þm., til þess að hindra að einstaklingurinn verði undir í kapphlaupi tækniframfaranna. Hann er m.a. til þess að hindra að einstaklingurinn og hans persónulegu réttindi verði undir í kapphlaupi tækniframfaranna. Við skulum hafa það í huga.