Gagnagrunnar á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 16. apríl 1998, kl. 18:59:44 (5598)

1998-04-16 18:59:44# 122. lþ. 106.12 fundur 661. mál: #A gagnagrunnar á heilbrigðissviði# frv., KH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 106. fundur, 122. lþ.

[18:59]

Kristín Halldórsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Nú ætla ég að vera stuttorð. Hæstv. ráðherra gaf mjög skorinort svar og mjög mikilvægt. Við eigum ekki að fara fram úr sjálfum okkur, sagði hún, og það ætla ég rétt að vona að standi og vil bara enn og aftur ítreka hve mikilvægt það er að fullkomin sátt verði um málið milli allra þeirra mörgu sem hafa mikilla hagsmuna að gæta í málinu. Vegna þess að hæstv. heilbrrh. nefndi þá magísku tölu níu mánuði þá hefði ég talið að það væri ágætur tími til þess að fara yfir málið.