Guðmundur Árni Stefánsson (andsvar):
Virðulegur forseti. Þess var auðvitað ekki að vænta að hæstv. ráðherra gæti svarað nema örfáum hluta þeirra spurninga sem ég varpaði fram. En ég vænti þess að hann komi inn í umræðuna með viti bornum hætti og haldi hér sæmilega ræðu um málin en sé ekki að stökkva inn með einhvers konar stikkorð sem erfitt er að festa hendur á.
Í fyrsta lagi varðandi þau tvö atriði sem hann reyndi að svara --- ég er búinn að heyra þessa ræðu margoft um að það sé komin festa á það hvernig eigi að borga gömlu skuldirnar og líka að uppi séu hugmyndir um hvernig eigi að standa skil á kostnaði vegna stækkunar Leifsstöðvar. En ég benti á það áðan að nú þegar er búið að breyta því uppleggi í flugmálaáætlum, framlaginu hefur verið breytt, þannig að sú jafna sem þar var búin til hefur þegar tekið breytingum.
Í öðru lagi vil ég líka spyrja um hvaða 18 millj. þetta eru sem bara á þessu ári eiga að verða til í flugstöðinni. Það þarf ekkert að svara mér því að þær geti komið úr almennum rekstri eða af lendingargjöldum eða einhverju öðru, ég er bara að spyrja: Hvað er þetta? Það voru mínar spurningar.
Í þriðja lagi vildi ég árétta þær spurningar sem ég --- ja, sumar hverjar, þær voru fjölmargar, ég hef ekki tíma til þess að renna yfir þær allar. Ég spurði einfaldlega hvort ekki væri alveg ljóst að til þess að forsendur flugmálaáætlunar gangi upp, þá komi nýir peningar úr ríkissjóði á fjárlögum hvers árs. Og menn sjá alveg hvaða tölur er hér um að ræða. Ef ég man rétt, þá eru það 13 millj. á þessu ári, 18 millj. á næsta, allt stendur þetta nú í greinargerðinni. Ég bara spurði einfaldlega: Er það ekki alveg ljóst að hæstv. ráðherra tryggi það að þeir fjármunir muni koma af fjárlögum?
Ég spurði líka um áform hans, hvort flugmálaáætlun tæki breytingum í ljósi þeirra heimilda sem hann er að skapa sér í frv. til laga um loftferðir. Munum við sjá nýja vídd í þeim efnum í flugmálaáætlun? Er þetta kannski í síðasta skiptið sem við fjöllum um flugmálaáætlun með hefðbundnum hætti? En mikið lifandis skelfing væri nú annars gaman og fróðlegt, virðulegi forseti, svona annað slagið að þessi hæstv. ráðherra og margir aðrir kæmu inn í umræðuna með viti bornum hætti en stykkju ekki upp eins og hérar annað slagið í örstutt andsvör, heldur ræddu málin málefnalega.