Almannatryggingar

Þriðjudaginn 21. apríl 1998, kl. 20:21:57 (5681)

1998-04-21 20:21:57# 122. lþ. 108.12 fundur 459. mál: #A almannatryggingar# (endurgreiðsla sérfræðikostnaðar) frv. 41/1998, Frsm. ÖS
[prenta uppsett í dálka] 108. fundur, 122. lþ.

[20:21]

Frsm. heilbr.- og trn. (Össur Skarphéðinsson):

Herra forseti. Heilbr.- og trn. hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund til reifunar Guðríði Þorsteinsdóttur frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti. Við fengum einnig umsagnir frá Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, landlæknisembættinu, Læknafélagi Íslands og Tryggingastofnun ríkisins. Umsagnir voru mjög jákvæðar í garð frumvarpsins.

Í frv. felst heimild fyrir Tryggingastofnun ríkisins til að endurgreiða þeim sjúklingum sem leituðu til sérfræðinga sem sagt höfðu sig af samningi við stofnunina sl. haust. Skilyrði fyrir endurgreiðslu er að sjúklingur framvísi fullnægjandi reikningi og að viðkomandi sérfræðingur hafi endurnýjað samning sinn við Tryggingastofnun ríkisins. Með fullnægjandi reikningi er átt við númeraðan reikning þar sem fram koma upplýsingar um hvaða verk var unnið og hvenær, nafn læknis og sjúklings. Nefndin leggur þó til eina breytingu á frumvarpinu þannig að einnig fái endurgreiðslu sjúklingar sem leitað hafa til sérfræðinga sem hafa hætt rekstri sem sjálfstætt starfandi sérfræðingar og hafa því ekki endurnýjað samning sinn við Tryggingastofnun ríkisins.

Nefndin mælir því með samþykkt frumvarpsins með svofelldri breytingu, með leyfi forseta:

,,Á eftir 2. efnismálsl. 1. gr. komi nýr málsliður, svohljóðandi: Hafi sérfræðingur ekki endurnýjað samning sinn af þeim sökum að hann hafi hætt rekstri sem sjálfstætt starfandi sérfræðingur skal þó heimilt að endurgreiða sjúklingum hans samkvæmt framansögðu.``

Herra forseti. Við leggjum til að frv. verði samþykkt með þessum breytingum.