Ísólfur Gylfi Pálmason:
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni fyrir að taka jafn vel í þetta mál og raun ber vitni. Það er gjarnan kvartað undan því að þingmenn stjórnarinnar eða stjórnarsinnar séu ekki í þingsölum þegar málefni stjórnarandstöðuþingmanna eru í umræðunni og satt að segja hefur ekki mikið borið á þingmönnum stjórnarandstöðunnar í dag. Þess vegna gleður það mig sérstaklega að hinn störfum hlaðni en mikilvirki þingmaður skuli vera í þingsölum með okkur í kvöld til að ræða þessi mál sem eru alvarleg og brýn og sýnir það að hann er mjög glöggur og getur á stundum verið afar réttsýnn sérstaklega þegar hann vill það við hafa.