Kristján Pálsson (andsvar):
Herra forseti. Það er búið að segja mikið núna í þessum stuttu andsvörum um þann misskilning sem hv. þm. Rannveig Guðmundsdóttir virðist hafa varðandi skipulag á miðhálendinu.
Hv. þm. Siv Friðleifsdóttir tilkynnti um samkomulag sem hefði verið gert um að leggja fram til kynningar ákveðna breytingu á skipulagslögunum, og það er alveg rétt, en það var alger óþarfi í rauninni að leggja fram einhverja breytingu á skipulagslögum því að 12. gr. heimilar að gera svæðisskipulag og 12. gr. hefur þar að auki verið nýtt til þess að setja upp svæðisskipulag sem er þegar í vinnslu og 14 manns hafa starfað í nefnd til að koma upp því skipulagi.
Ég vil aðeins minna hv. þm. á það að þegar ríkið verður orðinn eigandi að öllu landi utan eignarlanda, þá er það eigandi landsins sem kemur til með að stjórna nýtingu þess en ekki einhverjir aðrir aðilar og það verður að sjálfsögðu gert í samræmi við skipulag sem eigandi kemur að sem umsagnaraðili og aðrir aðilar sem að skipulagi koma yfir höfuð. Það er því alger reginmisskilningur að þarna sé um að ræða fámenna hópa bænda eða sveitarstjórnarmanna í litlum sveitarfélögum sem koma til með að ráða yfir hálendinu. Þetta er svo ótrúlegur misskilningur sem búinn er að ganga í þjóðfélaginu að maður vart trúir því að fara eigi að endurtaka þessa umræðu á næstu klukkutímum á sömu nótum.