Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Ég ætla að trufla þessar deilur stjórnarandstæðinga og spyrja hv. þm. Rannveigu Guðmundsdóttur sem fjallaði eingöngu um stjórnskipun hálendisins í framsöguræðu sinni. Ég var reyndar líka með fyrirvara um það atriði ásamt hv. þm. Siv Friðleifsdóttur. Ég tel, eins og frsm. minni hluta, að fulltrúar landlausra íbúa bæja og borgar eigi að koma að skipulagningu þess svæðis og það er reyndar leyst með því frv. sem hæstv. umhvrh. hefur dreift á borð þingmanna.
Hins vegar ræddi hv. þm. ekkert um frv. sjálft eins mikilvægt og það nú er. Því vil ég spyrja hv. þm.: Hver er skoðun hennar á hinni almáttugu eftirlitsnefnd sem nánast tekur fjárráðin af sveitarfélögum? Tekur hún undir 9. brtt. meiri hlutans sem tekur burt eftirfarandi ákvæði: ,,Ákvarðanir eftirlitsnefndar eru endanlegar og verða eigi kærðar til ráðherra``?