Umhverfisráðherra (Guðmundur Bjarnason) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég hef út af fyrir sig ekki mikið um það að segja að hv. þm. lýsi skoðun sinni á því frv. sem hér er lagt fram. Ég vil hins vegar ítreka að ég tel að hér hafi að miklu verið mætt þeim sjónarmiðum sem skapað hafa ágreining um skipan mála, fyrst og fremst byggingar- og skipulagsmálanna, á miðhálendinu.
Í mínum huga er algjörlega ótvírætt að eðlilegt sé að skipta landinu milli sveitarfélaganna og sveitarfélögin fari þarna með allt stjórnsýsluvald, hvort sem það eru byggingar- og skipulagsmál eða aðrir þættir þeirrar stjórnsýslu sem sveitarfélögunum ber að fara með. Með vinnu samvinnunefndar, bæði þeirrar sem hingað til hefur starfað og þeirrar sem hér er gert ráð fyrir að taki við og fjalli m.a. um aðalskipulag sveitarfélaganna --- aðalskipulag er ótvírætt verkefni sveitarfélaganna en ekki ríkisvaldsins eða slíkrar samvinnunefndar --- þá tel ég að málum ætti að vera vel borgið.
Auðvitað getur menn greint á um hve langt skuli ganga, hvernig standa skuli að samráði og hvernig taka eigi afstöðu til ágreinings, ef upp kemur. Í skipulags- og byggingarlögum er kveðið á um hvernig farið skuli með þau mál. Mér þykir leitt að heyra þessa yfirlýsingu hv. þm. en ég tel, og vænti þess að mikill meiri hluti þingsins sé sammála um það, að hér sé vel komið til móts við þau sjónarmið sem mest hafa verið uppi í umræðunni.