Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):
Herra forseti. Þetta var athyglisvert andsvar vegna þess að hæstv. umhvrh. hefur raunverulega staðfest það hér að hann getur staðfest tillögur núverandi miðhálendisnefndar og verið búinn að því áður en samvinnunefndin kemur að því um næstu áramót. Hann neitaði því ekki.
Síðan er náttúrlega athyglisvert í athugasemdum við frv. til laga um breytingu á skipulags- og byggingarlögum að þar segir ráðherrann í greinargerðinni sisvona, herra forseti:
,,Nefndinni [þ.e. nýju samvinnunefndinni] er ekki ætlað að taka þá vinnu til endurskoðunar sem þegar hefur verið unnin, aðeins gefa umsögn um hana.``
Fulltrúar suðvesturhornsins sem koma að þessari vinnu mega sem sagt bara gefa umsögn um þá vinnu eða þær tillögur sem þegar liggja fyrir en engin áhrif hafa á það að öðru leyti, bara gefa umsögn um þær og er nema von að hv. þm. Ólafur Örn Haraldsson hafi stoppað við þessa tillögu sem hérna er lögð fram vegna þess að nefndinni er ekki ætlað að taka þá vinnu til endurskoðunar sem þegar hefur verið unnin, aðeins gefa umsögn um hana. Og ég spyr hvað það þýðir varðandi fulltrúa suðvesturhornsins og þá Vestfjarða sem koma að þessu: Hafa þessir fulltrúar ekkert ákvörðunarvald í þessari nefnd og um þessar tillögur? Eiga þeir virkilega bara að hafa þann rétt að gefa umsögn um þær sem þeir standa svo kannski frammi fyrir að ekkert mark verði tekið á?
Þetta sýnir enn og aftur ruglið í þessu ferli öllu saman og slæleg vinnubrögð og ég vara við þessu, herra forseti. Ég tel að það sé stórslys ef það á að gera þetta að lögum á þessu þingi.