Sveitarstjórnarlög

Þriðjudaginn 28. apríl 1998, kl. 22:36:11 (5869)

1998-04-28 22:36:11# 122. lþ. 113.2 fundur 288. mál: #A sveitarstjórnarlög# (heildarlög) frv., SF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 113. fundur, 122. lþ.

[22:36]

Siv Friðleifsdóttir (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt að hugsanlega væri að ná þessu í gegn á yfirstandandi þingi, en ég met það þannig að þá mundum við nú sitja eitthvað lengur en til 8. maí. Hér eru stór mál sem eiga eftir að fá afgreiðslu.

Við sátum hér fyrir stuttu síðan yfir gagnagrunnsmálinu. Þar var málið ekki sent út til umsagnar. Þar voru menn fengnir beint til nefndarinnar til að koma með athugasemdir. Hið sama mætti gera í þessu máli. En það er nokkuð sem þingforsetar verða að taka upp.