Kristján Pálsson (andsvar):
Herra forseti. Hv. þm. vitnar hér í greinar vítt og breitt og gerði í ræðu sinni sérstaklega að umtalsefni grein Steinunnar Sigurðardóttur rithöfundar, sem er hinn besti rithöfundur. (GE: Erindi.) Í erindi sínu, eins og hann segir, gerir rithöfundurinn lítið úr því að tónlistarmaður skuli hafa átt sæti í svæðisskipulagi um miðhálendið, þar hefði frekar átt að vera sérfræðingur í skipulagsmálum. Samt notar hv. þm. þessa grein sem helstu röksemd sína, en greinin er nú skrifuð í ungmennafélagsstíl. Hann notar þessa grein sem helstu röksemd sína gegn skipulagsákvæðum frv. um sveitarstjórnarmál og telur þessu flest til foráttu með röksemdum greinarinnar.
Ég spyr hv. þm. hvort hann hafi ekki rætt við þá sérfræðinga sem best eiga að þekkja, hjá Skipulagsstofnun ríkisins eða skipulagsstjóra ríkisins. Hefur hv. þm. ekki leitað ráða hjá þeim aðilum sem hafa helstu sérfræðinga landsins innan sinna vébanda og ættu að geta frætt viðkomandi um það sem best færi í skipulagsmálum landsins yfirleitt. Ég hef rætt þetta við skipulagsstjóra ríkisins og að hans mati er þetta mikið framfaramál að koma á þeim sveitarstjórnarlögum, þjóðlendum og breytingum á stjórnsýslu á hálendinu sem um hefur verið rætt. Sú breyting mun í sjálfu sér koma allri stjórnsýslu á þessu svæði á allt annað stig enda hefur hún ekki verið nein fram að þessu.
Hv. þm. Hjörleifur Guttormsson hefur lýst skoðun sinni hér í þinginu á þessu sérstaka máli. Hann hefur verið talinn einn fróðasti maður um skipulag hálendisins fram að þessu. Hann hefur flutt margar merkar tillögur og ræður um þetta mál og í sjálfu sér bera allir virðingu fyrir hans þekkingu að þessu leyti. Er það ekki sérfræðingur sem hv. þm. gæti tekið mark á?